fimmtudagur, mars 16, 2006

jamm...jammm...jammm....mig langar á að byrja á því að þakka Daða sem er með mér í skólanum fyrir að sína einstaklega mikla hæfni og hreint og beint æðisleg ummæli um mig sem hann commentaði á mig undir dulnefninu Sæta Stína. Daði, mér þykir vænt um þig líka. Það er hrikaleg stemming um þessar mundir, mar situr eins og versti njörður fyrir framan tölvuna daginn út og inn, skrifandi einhvern horbjóð sem maður skilur ekkert í sjálfur í einhverri Siðfræði ritgerð. Við erum að tala um að hugtökin eru svo ruglingsleg að ég held að þau gagnist mér einungis í eitt, setja þau einhvers staðar inn til að lengja ritgerðina. Gjörsamlega úthugsað hjá kjallinum. Svo er annað mál á dagskrá, ég er að fara í nudd á eftir. Ég segi það aftur, ég er að fara í NUDD á eftir. Við sem erum á nuddbrautinni erum s.s. öll á leiðinni í nudd um 5 leitið í dag, ég segi það og skrifa, þetta verður hrein bomba, B-O-B-A. Spurning um að byðja um eitt erótískt, liggja þarna nakinn, olíuborinn og alveg til í einhvern hrikalega rómó pakka. Einmitt.....já og meðan ég man þá er flöskudagurinn mikli að nálgast, held að hann sé á morgun. Allur landinn að fara að hella aðeins í sig og gera sér dagamun. Kjallinn ætlar bara að vera salí rólegur heima og vera með pizzu í annarri og nammið í hinni. Svo er mar að fara að vinna sem farastjóri með 2 hópa í fjórhjólaferðir allan laugardaginn og svo kannski 2-3 öllarar með liðinu um kveldið, til að vera í smá gír með þeim! Ekkert smá snilldar starf það! Frítt vín, leika sér á fjórhjólum í allskonar dóti og gera grín af einhverjum sem skilja alla slöppu fimm aura brandarana mína. Leiðinlegt að vera svona misskilin gaur! But anyway, Salí!

4 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Hæ Hæ ertu á föstu? sætur strákur:P

16 mars, 2006 18:46  
Anonymous Nafnlaus said...

Hæ.... Ég er ekki frá því að nuddið í gær hafi verið með því betra... væri til í þetta amk 1x í viku. Góða helgi og farðu varlega á djamminu!!! ;)

17 mars, 2006 12:54  
Blogger agustdan said...

Ég lofa því.....helda að ég djammi ekki mikið um helgina...ætla bara að vera rólegur í kvöld og er að vinna á laugardaginn.

17 mars, 2006 14:17  
Blogger yanmaneee said...

air jordan
kobe byrant shoes
adidas ultra boost
valentino shoes
calvin klein outlet
louboutin outlet
kobe basketball shoes
lebron 15 shoes
nike air max 2019
curry 4 shoes

10 maí, 2019 10:50  

Skrifa ummæli

<< Home