föstudagur, október 27, 2006

Kjallinn er veikur, komin með beinverki, hita og hálsbólgu. Þvílíkur skítur og leiðindi. Ég þoli ekki að vera svona. Langar mest að vinna um helgina en er bara ekki að sjá fram á það eins og er. Er bara eins og rakki hérna í vinnunni.

Ég er nú samt með smá fréttir, við Eva erum búin að kaupa okkur bíl. Vagninn er uppá 10,2. Toyota Corolla Touring, 1.8L, 4X4, Ekinn 142.000 km og er árgerð 1998. Hérna er mynd af þotunni!
Svo er mar búin að dunda í ca. 4 tíma bara við það að bóna kvikindið. Hann er rosalega heillegur og fínn í akstri. Eyðir nánast engu og er bara algjör snilld.

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Farðu nú að setja mitt rétta netfang inn á tenglasíðuna....láttu þér batna kútur.....til hamingju með drossíuna !

28 október, 2006 00:01  
Anonymous Nafnlaus said...

Grænn hatchback ? Vorum við ekki búnir að tala um þetta ? Hahahaha
Bara að fokka í þér drengur!
Annars er hér linkur á álvöru hatchback: http://www.streetracersonline.com/articles/bmw1/
Annars er ég búinn að segja við Maddý að fyr frýs ég í helvíti en að kaupa mér hatchback!

20 nóvember, 2006 02:00  

Skrifa ummæli

<< Home