þriðjudagur, október 17, 2006

Heppnasta familía í heimi!

Jæja smá fréttainnskot, mamma mín var í Krónunni að versla þegar hún er að setja í pokann og leggur veskið frá sér. Þá kemur einhver tittur og tekur veskið hennar og því miður var það fullt af pening þar sem hún var nýbúin að taka út gjaldeyri fyrir Danmerkur ferð til Davíðs bróður. Mamma alveg í pirrings-pakkanum. Gaurinn ekki að finnast og allt í messi. Þetta gerðist á föstudaginn. Svo vildi það til að vinur Ívars bróðir sá gaurinn rétt hjá Krónunni og sagði okkur hver þetta er. Gaurinn er fo... 13 ára, skoppara kvikindi. Plús það að hann á foc.. ríka foreldra. Þau erum með þeim ríkari á nesinu. Hvað er að helvítis uppeldinu á þessu heimili. Gaurinn stelur frá fólki þegar hann á skít nóg af þessu, og mamma hans sagði það við okkur. Reyndar skilaði hann peningnum en henti veskinu sem hún mamma á í sjóinn eða eitthvað. Því tapaði hún fullt af dóti, þar af meðal einhverjum ermahnöppum sem pabbi á, greiðlsukort og fl. Langar að slátra helvítis gaurnum.

Þegar mar fer svo að spá í þetta þá er þjóðfélagið að fara hríðversnandi, bara í fréttum í morgun er fullt af einhverjum fíkniefnamálum. 170 hassplöntur og eitthvað fleira. Svona menn á að aflífa. Þeir eru að skemma svo mikið af ungu og efnilegu fólki með sölu á þessum viðbjóð. Hver sala dregur einn mann niður og þá spyr mar sjálfan sig; Hvað er hægt að skemma mörg líf með 170 plöntum af hassi?

Þetta er bara að verða rugl hvað er mikið af fréttum um allskonar vitleysu, þjófnuðum og skemmdarverkum. Hverjum er þetta að kenna? Er það uppeldið? Er þetta þjóðfélaginu að kenna?

Smá hugmynd!
Spurning um að fá Kára í DeCode til að finna erfðamengið sem er að klikka í þessum einstaklingum. Læsa þá í kjallaranum í aðalstöðvunum hjá DeCode og rannsaka liðið. Útiloka svo litningin sem klikkar og setja eitthvað nitsamlegra í staðin.

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Djísss... Óþolandi sona óheiðarlegt lið sem er bara að stela til að stela!!!!
Og allt þetta, þjófnaður, dóp og soliss rugl þá held ég að uppeldið eigi LANG stærstan þátt í því... Ef mar spáir bara í því að þá eru allir á fullu við að keppast við að eiga allt og gera allt og geyma börnin sín á leikskólum eða á skólum á meðan og þegar krakkarnir eru orðnir of stórir fyrir daggæslu þá eru þau bara eftirlitslaus allan daginn... Og ekki bara eftirlitslaus heldur líka so afskipt, það vantar so mikið aga og nánd í nútíma uppeldi...
Og þessi krakki er pottþétt skólabókardæmi um barn sem fær ekki nógu mikinn aga og litla sem enga hlýju á sínu heimili þar sem foreldrar hans eru of uppteknir við að vinna til að eiga fyrir BMW-inum og 300 fm einbýlishúsinu og setja barnið í sona 100 sæti í forgangsröðina!!!

Úfff... Þetta var alveg lengsta komment sem ég hef skrifað..;)

*Knús & knossar*

17 október, 2006 15:14  
Anonymous Nafnlaus said...

Hæ maður saknaði þín alveg á laugardaginn!!! Hvað er annars með Davíð?? Engar fréttir, blogg eða lífsmörk!!

17 október, 2006 23:14  

Skrifa ummæli

<< Home