miðvikudagur, apríl 12, 2006

Páskafrí er þvílík snilld, mar sefur út, fer að lyfta, vinna og gerir það sem manni langar að gera! Ekkert í því að læra heima, liggja í leti og éta eins mikið af ís og nammi og ég get í mig látið. Eina er það að ég er kominn með verki í bakið á því að liggja og sofa of mikið. Hversu skrítið er það, venjulega er mar með verki í bakinu eftir of miklar æfingar. Reyndar er ég búin að vera að lyfta frekar mikið undanfarið, dett samt í steypuna í dag og tek mér frí frá æfingum, var aðeins of mikið að í gær! Var 4 og hálfan tíma, smá sperrrur í kjallinum í dag. En í kvöld ætla ég að detta í smá pakka, lokahófið í handboltanum er í kvöld og þar verður tekið vel á því, bjór, amaretto og fleira verður brúkað af alkunnri snilld. Flottur matur verður reiddur fram og allt á eftir að enda í rugli eins og venjulega á svona kvöldum, reyndar kom ég heim af djamminu um hálf tíu um morgunin síðast en það verður ekki endurtekið. Verður örugglega ekkert vel tekið í það að mæta svona seint af djamminu. Samt gaman af þessu! Skila kveðju til allra sem eru að fara að hrynja í það í kvöld! Salí!

6 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Farðu varlega í djammið gamli... gæti endað illa. Hafðu það gott í fríinu og undirbúðu þig fyrir stórkostlegan fyrirlestur og undirbúning fyrir prófin, sjáumst eftir páskafrí

kv. xxx :)

12 apríl, 2006 16:00  
Anonymous Nafnlaus said...

Heh, djammið var ekkert slæmt síðast! Rakst á þessa síðu og allt í lagi að skila smá kveðju! Takk fyrir síðast, gaman að kynnast þér :)

12 apríl, 2006 22:55  
Anonymous Nafnlaus said...

Frí er gott, þegar maður er búinn að vera að djeflast á rassgatinu

ó ó ó ó

14 apríl, 2006 03:11  
Anonymous Nafnlaus said...

Hedonismi og nautnafullt líferni bara! Vér skulum bara vonast til að þér forðist það sem við köllum tergum perspicax.

14 apríl, 2006 03:38  
Blogger yanmaneee said...

jordan shoes
ultra boost
air max 97
adidas yeezy
adidas yeezy boost
off white
baseball jerseys
nike air max 97
goyard handbags
mbt

10 maí, 2019 10:51  
Blogger yanmaneee said...

moncler jackets
hermes bags
kyrie 4
kd shoes
adidas ultra boost
golden gooses
supreme t shirt
christian louboutin outlet
nike air max 90
vapormax

14 ágúst, 2020 13:55  

Skrifa ummæli

<< Home