mánudagur, desember 18, 2006

Þá er það loksins orðið opinbert fyrir þá sem ekki vissu af því: Ég og Eva mín eigum von á barni! Við eigum að eignast barnið 4. Júní á næsta ári og getum ekki beðið.

Þetta er 12 vikna sónarmynd. Þeir sem eru slappir í stærfræði geta fengið smá hjálp, þetta eru 3 mánuðir. Förum í sónar aftur 17. Janúar og ég er ekkert lítið spenntur. Svo er ég búin að heyra hjartsláttinn í litla krílinu okkar. Var ekkert smá hraður en ég get ekki þurkað brosið af andlitinu á mér. Held að ég hafi ekki verið eins ánægður á ævinni. Er bara ekki að trúa þessu!

14 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Finally get ég óskað þér til hamingju hérna frændi, nottla löngu búin að knúsa þig til hamingju...;) Þetta er sko alveg ástæða til að brosa hringinn...;)

Ég bið að kærlega að heilsa Evu og passaðu vel uppá hana, sem ég veit reyndar að þú gerir...;)

18 desember, 2006 17:41  
Anonymous Nafnlaus said...

Hæ hæ!

Innilega til hamingju með krílið, ánægjulegar fréttir :o)
Kíkjum annað slagið á síðuna þína í gegnum síðuna hjá Davíð og Gerði ;o)

Kveðja,
Dabbi Hlö og Adda Mæja

18 desember, 2006 18:17  
Anonymous Nafnlaus said...

Má ég þá loksins blogga um litla ættingjann.....

18 desember, 2006 23:04  
Blogger agustdan said...

Davíð minn, þú mátt sko alveg blogga um litla erfingjann minn!

19 desember, 2006 11:27  
Anonymous Nafnlaus said...

Enn og aftur innilega til hamingju elsku Ágúst og Eva :D ..
btw - ætliði svo ekki að setja upp síðu svo maður geti fylgst með bumbunni stækka ;) hehe !

vona að þið eigið yndisleg jól og áramót !! :D

knús og kossar til litla frænda/frænku hehe ;) .. ég spái því að þetta verði ... strákur!!

20 desember, 2006 13:33  
Anonymous Nafnlaus said...

Til hamingju:D ég er ekki frá því að litla krílið líkist pabba sínum soldið ;) hehe

20 desember, 2006 16:12  
Anonymous Nafnlaus said...

Innilega til hamingju elsku Ágúst og Eva;) Mér líst ekkert smá vel á hann/hana(myndast allavegana mjög vel)..!!

20 desember, 2006 18:21  
Anonymous Nafnlaus said...

Til lukku elsku kallinn minn, maður er nú að bíða eftir þessu síðan við útskrifuðumst, frábærar fréttir!!!

21 desember, 2006 01:09  
Anonymous Nafnlaus said...

Innilega til hamingju með þetta allt saman, þetta verður bara skemmtilegra þegar þið farið í 16 vikna sónarinn!!! he he he...allavega ég vona að allt gangi vel hjá ykkur. Kveðja Una Dögg

21 desember, 2006 04:36  
Anonymous Nafnlaus said...

jii til hamingju! voða er maður að verða fullorðinn eitthvað!! :D -Sara og Gísli

21 desember, 2006 16:47  
Anonymous Nafnlaus said...

Elsku Ágúst og Eva! Ótrúlega mikið til hamingju..! :) Djiii ég var bara ekki að trúa þessu !! en vá þið eigið eftir að verða bestu foreldrar í heiminum! Ég býst þá ekki við að sjá ykkur á sálarballinu í stapanum á annan í jólum...eða hvað;) Vona að ég hitti ykkur svo ég geti knúsað ykkur:)
Allavega eigiði gleðileg jól og hafið það alveg lang-langbest:)
Kveðja, Rut

21 desember, 2006 19:04  
Anonymous Nafnlaus said...

Til hamingju það er ávalt gaman að heyra að lítið kríli séu á leiðinni.
Farið vel með ykkur og Gleðileg jól

24 desember, 2006 00:37  
Anonymous Nafnlaus said...

Ohh vá til hamingju með litla baby-ið!!! Æðislegar fréttir!! Vona að allt gangi vel hjá ykkur:) Og hafið það gott yfir hátiðarnar!!!!

26 desember, 2006 01:32  
Anonymous Nafnlaus said...

Með rosa góðan prófíl. Efnilegt í pampersauglýsiningar (þarf ég alltaf að vera fífl? já)

05 janúar, 2007 00:34  

Skrifa ummæli

<< Home