miðvikudagur, febrúar 28, 2007

Konan eftir 1 mánuðKonan eftir 3 mánuði
Konan eftir 5 mánuði
Svo koma myndir fljótlega af litla erfingjanum
Já, það er smá tími síðan ég hef bloggað síðast og margt búið að gerast. Eins og er þá erum við Eva fósturforeldrar þriggja yndislegra barna og erum flutt í Fossvoginn næstu 4 dagana og höfum verið þar í 4 daga. Ég er sem sagt 3(4) barna faðir eins og er, bara gaman. Reyndar var litla skvísan sem við erum að passa veik í 3 daga og svo er ég veikur núna og svo er það tropið, einn strákurinn var að mælast með næstum 40 stiga hita í dag. Þar er veikinda festival hjá okkur. En þessi kríli eru alveg þess virði, hef bara gaman af því að vera með þau og finna það í manni að það sé smá pabba gen þarna á bakvið. Held að ég verði bara ágætur pabbi með þessu áframhaldi.
Það sem er svo aðallega í fréttum er það að við erum búin að kaupa okkur kerruvagn fyrir erfingja okkar. Keyptum hann af stelpu sem var með mér í Kvennó og ég vissi ekki einu sinni að hún ætti barn, var mjög fyndið þegar ég kom að kaupa vagninn og þar sá mar Auði sem var í 4-T ef ég man rétt. Svo vorum við að fá fjölskylduvögguna sem fjölskyldan hennar Evu á og er búið að nota í 2 ættliði ef ég man rétt. Svo erum við aðeins byrjuð að fá smá af fötum gefins og svona.

13 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Já Ágúst minn það er nú ekki djúpt á pabbagenunum hjá þér..;)
Og Eva lítur ekkert smá vel út með kúluna:D:D

02 mars, 2007 10:52  
Anonymous Nafnlaus said...

Snilld að sjá litla afkvæmið stækka ;) hlakka til

02 mars, 2007 19:31  
Anonymous Nafnlaus said...

þetta var ég sem skrifaði síðasta komment skil ekki af hverju nafnið kom ekki :D

02 mars, 2007 19:31  
Anonymous Nafnlaus said...

Halló hvaða pornomyndir eru þetta eiginlega af litlu systur. Ekki í góðum málum kallinn minn nokkuð ljóst, sleppa haldaranum á næstu ekki spurning

03 mars, 2007 18:07  
Anonymous Nafnlaus said...

úfff... gaman gaman :D
öfunda ykkur alveg óendanlega mikið :)
bestu kveðjur!

04 mars, 2007 22:43  
Anonymous Nafnlaus said...

ofurflott bumba ;) bið að heilsa litlu frænku eða frænda ;) knús !

05 mars, 2007 19:39  
Anonymous Nafnlaus said...

Langaði bara að benda þér á það að ég á ekkert barn og þú keyptir engan vagn af mér! ;) hehehe! Ég var bara spurð að því hvort að ég ætti barn og bent á þessa síðu :þ Og Davíð... þú segir ekki neitt! hahahaha! En allavega til hamingju með erfingjann! ;)
Kveðja, Auður sem að var í 4T í Kvennó! :þ

06 mars, 2007 11:31  
Anonymous Nafnlaus said...

úúú, sæt bumba. Hlakka til að sjá bumbubúann, þú kannski býður gamla bekknum í brunch þegar krílið fæðist :)

07 mars, 2007 19:32  
Anonymous Nafnlaus said...

Jæja gamli, hvernig væri að drulla eins og einni færslu inn? Síðasta var 28.febrúar.... Anyways, styttist í að maður komi á klakann.

17 mars, 2007 15:56  
Anonymous Nafnlaus said...

Hæææ Ágúst, smá kveðja frá London!
Ekkert smá flott bumba, mar verður að taka flug heim til Íslands í sumar til að sjá bumbubúann!!
Vona að allt gangi ógó vel, bið að heilsa öllum (Evu, Davíð og Ívar allaveganna) :)
Bæ kv. Kolla

18 mars, 2007 20:27  
Anonymous Nafnlaus said...

Gauuuuuuur !!!!! Það er að verða kominn mánuður frá síðustu færslu, veistu hvað kostar að hringja í þig og spyrja þig hvað sé að frétta? Viltu gjöra svo vel að drulla inn einni færslu :D Undirstrika kurteisina, gjöra svo vel ;)

22 mars, 2007 16:30  
Anonymous Nafnlaus said...

Fer ekki að styttast í nýjar bumbumyndir, fylgist spennt með.. Eva er alveg með draumakúluna!!:)

25 mars, 2007 22:03  
Anonymous Nafnlaus said...

Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.

26 mars, 2007 06:18  

Skrifa ummæli

<< Home