sunnudagur, maí 13, 2007

Já ég veit að það er langt síðan ég hef bloggað og það er nú einungis vegna þess að ég hef verið í veseni með það að signa mig inn á þetta blessaða drasl. En sem betur fer hefur mér tekist það eftir að hafa sent öllum þessum vitleysingum email hjá blogspot og þeir eru nú loksins búnir að redda þessu eftir hvað, mánuð eða eitthvað! Betra er seint en aldrei! Það sem er nú í fréttum er eftirfarandi:
1. Það eru 3 vikur í að konan mín og ég eigum von á okkar fyrsta barni
2. Eva mín er búin í prófum á þrðjudaginn og þá fæ ég loksins afslappaða kærustu til baka.
3. Ég er að vinna í því að fá mér nýjan síma, ekki símanúmer heldur síma. Er að mixa gamla síman hans pabba og gamla "nýja" síman hans Ívars í einn góðan fyrir mig.
4. Ég er búin að fá samþykkt í vinnunni og búin að ganga frá öllu varðandi fæðingarorlofið sem mun byrja þann 1. Sept og vera fram að 1. Des, þá fer ég að vinna í 2 mán og byrja svo aftur 1. Feb til 1. Maí. Hlakkar ekkert lítið til að það byrji.
5. Erum búin að kaupa okkur vídeó cameru, barnarbílstól, kerru og base fyrir bílstólinn. Fáum það 25. Maí, vonandi eigum við ekki fyrir þann tíma.

Annars er allt fínt að frétta, er bara búin að vera að vinna á fullu, en vantar samt aðeins meira að gera í nuddinu. Endilega látið það berast að ég sé að nudda og það er nú ekki dýrt, grunnverðið hjá mér er 3000 fyrir 40-60 mín, fer eftir nuddinu, og svo er hægt að ræða við mig varðandi það að hafa lengra nudd og fleira. Endilega hafið samband: 869-1151

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Veiiiiii, það var mikið að þú skrifaðir :D en ég er orðinn mökk sýrður á þessum lestri, one down 4 to go..... shit hvað þessi tími er búinn að vera fljótur að líða, 9 mánuðir síðan maður flutti út, ss á svipuðu leyti og þú barnaðir konuna hahahaha

20 maí, 2007 21:27  

Skrifa ummæli

<< Home