föstudagur, júní 30, 2006

Guten Tag...Ég fór í fyrsta skipti í gær að skjóta úr byssu, ég hef án efa aldrei verið eins hræddur um að skjóta sjálfan mig. Mitt mottó var einu sinni að skjóta ekki neitt sem er lifandi, hef ekki þetta drápseðli í mér. Nema það að ég var næstum búin að skjóta mig sjálfan. Ekki nóg með það, ég hitti ekki eina leirdúfu. Ég ætla bara ekkert að reyna að fá áhuga fyrir þessu. Eftir það skelltum við okkur í bofimi, axakast og svo lékum við okkur aðeins á jeppunum á ströndinni. Algjör snilldar dagur.
Í kvöld er partý hjá Hildi vinkonu Evu, hún var að útskrifast úr Lögfræði með BS-próf. Þannig að ef þið eruð að spá í að gera eitthvað af ykkur í kvöld, þá reddar Hildur ykkur úr vandræðunum.
Ég er nú bara að spá í að fara í bíó á Fast and the Furious - Tokyo Drift í kvöld. Það er svona þegar konan fer út þá dettur mar í bíla- og mótorhjólapakka.

Fann einmitt geðveikt flott hjól til sölu á netinu sem ég er að deyja yfir. Spurning um að detta í smá kaupæði?

4 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Haha meira að segja ég hitti báðar leirdúfurnar þegar ég fór að skjóta;)

07 júlí, 2006 23:29  
Anonymous Nafnlaus said...

Hvernig er þetta með þig frændi, ertu hættur að blogga???

28 júlí, 2006 10:39  
Anonymous Nafnlaus said...

Ok í fyrsta lagi ættiru að skammast þín fyrir hversu latur þú ert að blogga og í öðru lagi... æ það var ekkert í öðru lagi... hhee gaman að sjá þig í eyjum.. verðum að taka eitt gott djamm saman.. kreisí í djamminu ójá hehe... Beyglan kveður

10 ágúst, 2006 19:06  
Blogger yanmaneee said...

adidas yeezy
ultra boost
curry 7 sour patch
kd13
yeezy shoes
curry 7
kyrie irving shoes
curry 4
stephen curry shoes
vans outlet

14 ágúst, 2020 14:00  

Skrifa ummæli

<< Home