sunnudagur, júní 24, 2007

Þá er komið að smá fréttum þar sem ég er búin að vera frekar latur við þetta allt. Ég hef hreinlega ekki viljað eyða tíma í neitt annað en að vera með litlu prinsessunni minni og Evu minni.

En fréttirnar eru eftirfarandi:

1. Litla prinsessan fór í bað með pabba fyrir 5 dögum í fyrsta skipti.

2. Litla prinsessan er búin að stækka um ca. 1 cm síðan hún fæddist og er orðin mjög mannalegri á svipinn, flestir segja að hún líkist pabbanum aðeins meira en hún er alveg eins og Eva þegar Eva var lítil.

3. Ég er að fara í próf á morgun í LOL203 sem ég er að taka í sumarskóla, er ekki alveg að nenna því en þetta er smá flash back í skólagöngu, samt hálf leiðinlegt.

4. Davíð og Gerður eru að koma heim 4 Júlí, sama dag og Ívar bróðir kemur líka frá þeim. Þau verða á klakanum í 2 vikur eða til 18. Júlí.

5. Pabbi er að fara til Spánar í dag í sjúkraþjálfun, verður í 17 daga og kemur heim 9 Júlí.

6. Ég er búin að komast að því að Eva mín er Súperman, hún er þvílík hörku kona og ég er brjálað stoltur af henni. Hún er ekkert smá dugleg að gefa prinsessunni og vakna á nóttunni, sinnir henni 230% og er samt ógeðslega falleg og jafnlynd, sexý og allt sem því fylgir, alveg greinilegt að ég hef náð mér í stelpu sem veit alveg hvað hún syngur.

En það er ennþá verið að vinna í barnaland síðunni, kemur inn í þessari viku!

9 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Heyrðu þetta er ekki hægt að setja inn fréttir en engar myndir af prinsessunni:(
Þú verður að bæta úr þessu !!!!!
Mamma

25 júní, 2007 12:57  
Blogger Unknown said...

Nákvæmlega...en það er nú samt gott að fá smá fréttir og heyra að það gangi allt svona vel. hlakka til að sjá fleiri myndir. Knúsaðu konurnar þínar frá mér.
Kv.Hanna Lilja

25 júní, 2007 22:21  
Anonymous Nafnlaus said...

Jæja félagi.. Stelpan er nú algjört augnakonfekt og það er æðislegt að heyra hvað u ert ánægður með lífið og konuna! :-) Væri nú samt alveg til að sjá fleiri myndir af augnakonfektinu! :D

kv, Saga litla rauða..

27 júní, 2007 18:56  
Anonymous Nafnlaus said...

HI herna er sidan min se ykkur io juli
http://gudrun-hulda.blogspot.com/
bye for now gudrun hulda

30 júní, 2007 23:52  
Anonymous Nafnlaus said...

Hæhæ til hamingju með stelpuna hún er alveg gullfalleg :)
Kv. Arna Rún

06 júlí, 2007 23:52  
Anonymous Nafnlaus said...

Hún er nottla bara yndisleg, ekkert smá mikil dúlla og eins og ég bjóst við þá bað Helgi mig vinsamlegast um að hafa mátulega langt bil á milli heimsókna til ykkar... U know what I mean...hehhe;)
En ég tek nú bara passlega mark á honum og það verður ekki langt að bíða eftir pitsuboðinu í Eggertsgötuna;)

17 júlí, 2007 21:35  
Anonymous Nafnlaus said...

Myndir ??? Myndir ???Myndir ???Myndir ???Myndir ???Myndir ???Myndir ???Myndir ???Myndir ???Myndir ???Myndir ???Myndir ???Myndir ???Myndir ???Hvernig er þetta með ykkur ?? Sólveig ekki á horninu

08 ágúst, 2007 12:21  
Anonymous Nafnlaus said...

Hæ frændi hvernig er það gengur ekkert með barnalandssíðuna??;)

Annars bara góða ferð til Danaveldis ef ég heyri ekki í þér áður en þú ferð;)

10 ágúst, 2007 23:33  
Blogger yanmaneee said...

moncler
longchamp bags
golden goose outlet
yeezy boost
golden goose
jordan shoes
goyard handbags
supreme clothing
bape hoodie
nike air max

14 ágúst, 2020 14:01  

Skrifa ummæli

<< Home