fimmtudagur, ágúst 24, 2006

Jæja þá er ég búin að vera hugsa hvað ég er búin að vera að gera í sumar, sem ég hef aldrei gert áður og svo var ég að spá í einu, hvað er það sem mig langar að gera og hef aldrei gert.

Það sem ég hef gert í sumar:
  • Rafting
  • Stokkið fram af 7 metra kletti - í Jökulá
  • Fór í Landmannalaugar
  • Fór um Breiðafjörðin í einkasiglingu
  • Fór í Flatey
  • Skaut úr riffli
  • Skaut úr haglabyssu
  • Skaut úr boga
  • Fór í hundasleðaferð á jökli
  • Fór í jöklaferð á jeppa
  • Fór í 7 tíma Fjórhjólaferð
  • Fór á Jestki - sem mar stendur á

Það sem ég á eftir að gera:

  • Fara í fallhlífarstökk
  • Mótorhjólaferð um Evrópu
  • Smella mér í heimsreisu
  • Reyna að veiða á flugu(vantar smá þolinmæði)
  • Fara í Íshellana á norð-vestur horni Langjökuls
  • Keyra yfir Sprengisand og Kjöl
  • Fara í Þyrluflug
  • Skella sér til Danmerkur í heimsókn til Dabba brósa
  • Klára nuddskólan
  • Fara í Ískeppni á Fjórhjólum
  • Kaupa mér Íbúð

Þetta er ágætis byrjun á löngum lista. Læt hér við sitja.

miðvikudagur, ágúst 23, 2006

Þá er ég búin að henda inn nokkrum myndum úr eyjum, eða flestum þeim sem voru hæfar til sýninga. Nuddskólinn er svo að byrja á morgun, frekar stressaður en held að þetta verði bara helvíti skemmtilegt. Það er víst byrjað á því að fá sér kökur og kaffi. Svo fer að koma að því að mar fer að munda nakta líkamana með olíu, svo ef ykkur langar í nudd, þá bara að hafa samband. Stutt og laggott þetta skiptið.

miðvikudagur, ágúst 16, 2006

Sælar elskurnar, nú er mar loksins komin í bæinn eftir nokkuð netta ferð með brúðhjón um sunnan- og vestanvert landið. Heppnin var nú samt ekki með mér, ég fékk ekkert herbergi á Hótel Búðum þar sem eitthvað klikkaði og ég þurfti að fara á eitthvað gistiheimili og þar var ekki símasamband, ekkert sjónvarp og engin tölva, það eina sem ég gat gert var að telja flugurnar í loftinu í 6 tíma, er ekkert að segja að mér hafi leiðst eða neitt svoleiðis. Svo daginn eftir fór ég í ferð um Breiðafjörðinn á nettum bát frá Stykkishólmi og þar fórum við í Flatey, borðuðum þar og skoðuðum netta fiska og fugla. Þokkalega nettur dagur og með ágætisfólki.

Annað í fréttum er það að Davíð bróðir er farinn út til Danmerkur. Er farinn í skóla í Árósum og verður þar næstu 3 árin með nokkrum stoppum og ferðum til Íslands. Ég er bara strax farinn að sakna kappans, elska kallinn. Bara stattu þig ef þú ert að lesa þetta.

Er að henda myndum inn frá Þjóðhátíðinni, tekur smá tíma. Salí!

föstudagur, ágúst 11, 2006

Já ég er búin að vera latari en andskotinn í blogginu. Þannig að ég ætla að breyta því með einum góðum pósti í dag. Byrjum á deginum, hann er viðbjóður, ég er með beinverki, hita, kvef, hálsbólgu og geðveikt mikið kvef, er hálf heppinn að kafna ekki í eigin slími. Góður dagur? Nehh.... en skellum okkur í að fara yfir það sem ég er búin að gera af mér undanfarið. Vinnan er búin að vera mjög stór hluti af því sem ég hef verið að gera undanfarið. Er að fara í 4 daga út á land með brúðhjón frá New York, búin að eyða 2 dögum með þeim og þau eru algjörir snillar. Gellan er bara flott og spyr endalausra spurninga sem ég hef bara gaman af og kjallinn hennar er ekki alveg að nenna öllum þessum ferðalögum. Hún nennir ekki að kalla mig Ágúst og er farinn að kalla mig Leó af því að henni finnst ég eitthvað líkur Leonardo DiCaprio.

Síðasta helgi var hrikaleg, fór til eyja og hitti gommu af liði og drakk eins og ég ætti lífið að leysa. Dabbi bróðir og kjellan hans fóru með okkur Evu og var það algjör snilld. Við fórum með Ælólfi um 12:00 á föstudeginum í því líkum veltingi og ég átti erfitt með að æla ekki, reyndar fékk mér burger með fröllum og pepsí. Strax og komið var í land henti mar sér í 10 kassa af bjór sem við tókum með okkur. Hittum endalaust af fólki á leiðinni í dalinn og vorum þar til að verða 4 um nóttina þegar við Davíð vorum dregnir heim af konunum því að þeim fannst við vera allt, og þá meina ég allt of fullir, vorum eitthvað aðeins í glasi. Týndum stelpunum í ca. 3 tíma og vorum í ruglinu fyrir framan sviðið með Dr. Spock að missa það. Þar var Kolla Smiley að dansa með okkur, bara nett. Hittum svo endalaust af gellum og nokkra vini okkar.
Laugardagurinn var voðalega erfiður, vaknaði meira fullur en ég fór að sofa, reyndi að hella í mig smá bjór en ekkert var að koma niður. Fórum svo í sund og hittum Ómar í KR og hann var nokkuð borubrattur. Hann sagðist ætla að taka á því um kvöldið. Förum að því síðar. Eftir sundið var Lambalæri og meðlæti sett á grillið og nokkrum bjórum hent niður ásamt vodka, gini og el capitan. Skelltum okkur í dalinn og náðum að djamma nokkuð vel þrátt fyrir að þynnkan hafi ennþá verið til staðar. Á leiðinni inní Togga-tjaldið þá mættum við Ómari í fanginu á 2 gæslugaurum og já, hann var dauður og ekki alveg að meika þetta, by the way klukkan var rétt að verða hálf eitt um nóttina. Ekkert var tekið á því um nóttina að viti en samt geðveikt gaman.
Sunnudagurinn var aðeins nettari, mun betra veður, vkanað og dottið í puldur og bjór, farið í heita pottinn hjá Bigga frænda í eyjum með smá nesti með sér. Eftir það var grill og farið í dalinn í Brekkusönginn, Bubbi var aðeins á undan og var geðveikt góður. Var að missa mig af ánægju þarna, náði mér í stól og gróf hann niður í brekkuna svo það væri gott að sitja og svo var sungið af hjartans list fram að miðnætti þar sem snilldar flugeldasýning var sýnd og kveikt á 132 blysum í hlíðum dalsins. Ógeðslega góð tilfinning. Svo var djammað með góðum nestisstoppum í hvítu tjöldunum fram eftir morgni, vorum að velta inn frekar seint, svaf 1 tíma áður en ég vaknaði fyrir heimferð í Æludallinn. Ég vill þakka öllum sem ég hitti og djömmuðu með mér fyrir helgina og vona að það sé hægt að endurtaka djamm bráðlega.

Kveð að sinni!