miðvikudagur, apríl 28, 2004

jæja þá er nýja útlitið á síðunni minni alveg tilbúið og hér með ætla ég að óska ykkur til hamingju með flotta síðu fyrir mína hönd....en það eru að koma stór tímamót í lífi mínu....2 dagar eftir aaf skólanum.....2 próf eftir og í sumar 2 mánuðir undir stjórn algjörara tussu....en hvað með það talan 2 er ekki mín því að ég skal ná yfir 7 í meðaleinkunn og því fara yfir metið mitt í meðaleinkunn sem er ekki nema 6.5 þannig að ég verð enn stoltari af sjálfum mér....en ég er búin að vera að undirbúa hitt og þetta og það kom í ljós að það eru líka 2 dagar í Dimmisjón hjá mér og þeir sem munu sjá mig verða allt annað en málglaðir þegar þeir sjá mig...búningur minn er hreint ógeðslegur fyrir karlmann að vera í ......en nóg með það.....smá innleggi hefur verið hennt inn á síðuna og ég frír á þvi að skrifa næstu 2 vikurnar....hehehehe hafið það gott....:!!!!!!!!!!!

þriðjudagur, apríl 20, 2004

jæja mínir góðu veflesendur....ég var að horfa á Survivor með þessum svokölluðu stjörnum...en ég komst bara að einu um þau...og það er að þau eru hálf klikkuð.....ég meina spáið í þessu, þau fara á einhvern stað þar sem þau vita að þau fá ekkert að borða að viti, lítið húsaskjól og ekkert nema skordýrabit að fá allan sólarhringinn og svo til að toppa þetta allt þá eru þau alltaf að svíkja hvort annað fyrir þann möguleika að vinna 1 milljón dollara. ég væri ekkert á móti 1 milljón dollurum en ég myndi ekki láta mér detta það í hug að fara á sama level í vitleysunni að gera sjálfan mig geðveikan fyrir lífstíð.....ég meina það segir allt sem segja þarf að þau eru að fara þarna í 2 sinn.....já það er erfitt að spá í svona geðveiku fólki.....en jú þau eru mannleg.....hafið það gott stjörnurnar mínar....!

fimmtudagur, apríl 15, 2004

upplifun dauðans kemur illa við veikt hjarta voru orð sem ég heyrði gamlan mann segja......þessi setning kom mér á það stig að hugsa um dauðann og hvað kristur gerði fyrir okkur mannkynið...ég fór á The Passion Of The Christ og fékk þar algjöra uppljómun á trúnni.. trúin hefur alltaf verið mér nær en svona síðustu árin hefur hún einhvað verið að dvína hjá mér útaf því að ég hef ekki verið að rækta hana. nú myndin kveikti á minni trú aftur...ég er búin að vera í sjokki eftir þessa mynd..hún segir manni svo margt um trúnna, mannfólkið og hvað kristur gerði til að maðurinn fengi syndir sínar fyrirgefðar....í myndinni The Passion of the Christ er mynd sem eins og áður segir fjallar um síðustu tólf klukkustundirnar í lífi Jesú frá Nazareth. Myndin byrjar í Getsemane þar sem Jesús hefur farið til að biðja eftir síðustu kvöldmáltíðina. Jesús stenst freistingar Satans. Jesús er svikinn af Júdasi Ískaríot, er handtekinn og færður aftur inn fyrir veggi Jerúsalem þar sem leiðtogar Faríseanna bera á borð ásakanir um guðlast og réttarhöldin yfir honum enda með því að hann er dæmdur til dauða.Myndin er sú langtum besta sem ég hef horft á sagði margt sem varla er hægt að koma orðum að.....til dæmis ákvað hann að leyfa mönnunum að húðstrýkja sig meira til að ögra þeim þar sem hann hefði getað lagst niður og s.s. ekki getað meira en þegar hann var búin að vera húðstrýktur til blóðs á öllum líkamanum stóð hann enn og aftur upp og áfram voru höggin látin dynja á honum þar til að hann lá hreyfingarlaus....styrkur Jesú kom svo fram í myndinni og sýndi það svart á hvítu að kristur er yfirnátturulegur....eftir allar barsmíðarnar og niðurlægingu lýðsins þá var sett á hann þyrnikóróna. Jesús fær krossinn afhentann og er skipað að bera hann um götur Jerúsalem og alla leið upp á Golgata hæð. Á Golgata hæð er Jesús negldur við krossinn og stendur frammi fyrir síðustu baráttunni, óttanum um að hann hafi verið yfirgefinn af Föður sínum. Hann kemst yfir óttann, lítur á Maríu, hans Heilögu Móður, og segir orð sem aðeins hún gat skilið að fullu, "það er fullkomnað."og þá frægu setningu: "faðir fyrirgefðu þeim því þeir vita ekki hvað þeir gjöra", síðan deyr hann: "í hendur Þér fel ég anda minn." Á því augnabliki sem hann deyr, umturnast náttúran sjálf.
Ég mæli eindregið með þessari mynd sem er mjög ljót og mæli ég því með að fólk fari með réttu hugarfari á þessa mynd...og munið að ef þið eruð að fara í bíó til að skemmta ykkur ekki fara á hana....þessi mynd er langt um besta mynd sem ég hef séð....full af flottum tökum.....snilldar leikstjórn hjá Mel Gibson og mjög fróðleg og átakanleg mynd!!!!
Farið á hana

föstudagur, apríl 02, 2004

góðan daginn háttvirtu gesti sálarbloggsins, argir og margir gestir mínir hafa verið að spá í því afhverju ég kalla bloggið mitt salina en það er vegna þess að ég tel mig vera mann með sál sem ég vill að aðrir kynnist. jafnframt vill ég segja ykkur frá skemmtilegustu ferð mánaðarins sem er verið að halda í í dag....þannig eru mál með vexti að ég er að fara á Akureyri bæði til að slappa af og skemmta mér á vélsleða og fleiru. einnig er ég að fara í fermingar til 3 sætra stúlkna sem eru frænkur mínar. þær eru svo heppnar að þær eiga eftir að upplifa daginn sem maður gekk í gegnum vegna trúar og hamingju.....kannski smá líka útaf gjöfunum og peningunum en ég viðurkenni það ekki ef ég er spurður að því.....en ég er s.s. að fara norður og mun gista hjá snillingum norðurlandsins Ásdísi og Badda..en nóg með það....ég er farinn norður og þið megið njóta dagsins hérna á suðurlandinu.....blessuð og eigið góða helgi::::!